Dirty Bug Yarn er einstaklega skemmtilegt fluguhnýtingaefni sem hentar sérlega vel til hnýtinga á silungaflugum. Það er ólíkt mörgum sambærilegum efnum enda er það ekki einlitt, heldur blanda af mörgum litum. Náttúrulegt æti fiska er sjaldnast einlitt og því er garnið kjörið til að kalla fram ólík litaafbrigði. Efnið býður sannarlega upp á ótal möguleika við hnýtingar.
Dirty Bug Yarn er tilvalið sem búkefni eða kragi í púpur, en hentar einnig í straumflugur, rækjur og þurrflugur. Efnið kemur raunar í stað hefðbundins dubbs, þar sem mörgum litum er blandað saman til að ná fram tilteknu útliti. Þó er hægt er að blanda saman ólíkum þráðum ef þörf krefur. Efnið er fáanlegt í fjölmörgum litasamsetningum sem gaman er að leika sér með. Á hverju kefli eru 5 metrar af þessu frábæra efni.
Fulling Mill Stealth Flugubox - Red
Guideline Elevation 9' #7
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Loon Caddy Smábrúsafesting
Patagonia Fly Catcher Fitz I. Green Derhúfa
Guideline Experience Waterproof Zip 21 Bakpoki
Guideline Badge Trucker Cap Heat Derhúfa
Fulling Mill 6-hólfa Box - Orange
Tacky Original Flugubox 2X
Loon Graffitolin Ferrule Vax - Samskeytavax
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
Fishpond Tacky Original RiverMag Flugubox
Jungle Cock Gervifjaðrir 



































































