Seguar taumaefnið er vafalaust með betra fluorocarbon taumefni á markaðnum í dag. Styrkleiki þess er mjög mikill, það er svo gott sem ósýnilegt í vatni og það er ákaflega hnútasterkt. Seguar er með einskonar glampavörn svo sólarljós endurkastist síður og styggi fisk. Seguar fæst í nokkrum styrkleikaflokkum og eru 50 metrar á hverri spólu.
Margt af því taumaefni sem Veiðiflugur selur brotnar ekki niður í náttúrunni. Veiðiflugur hvetja því veiðimenn til að hugsa vel um umhverfið og henda notuðu taumaefni ekki út í náttúruna.
Loop Z1 10' #7
Leech gleraugnahulstur (hard)
Hare's Ear Dubbing Magnpakkning
Loop Nordic Beanie Soft Black Húfa
Fishpond Ripple Hjólataska L 






