Faðmurinn er falleg hönnun á armbandi sem er jafnframt málband fyrir veiðimenn. Faðmurinn er fáanlegur í mörgum útfærslum og má segja að hvert stykki sé einstakt þar sem engir tveir faðmar eru nákvæmlega eins.
Þessi Faðmur er samsettur úr leðurreimum, segulás og er með mismunandi skrauti á fimm og tíu sentímetra millibili. Veiðimaðurinn tekur armbandið af sér auðveldlega og mælir fiskinn. Hægt er að fá sérstakt skraut sem markar lengd einstakra og eftirminnilegra fiska.
Faðmurinn er framleiddur af Reiðu Öndinni sem sérhæfir sig í framleiðslu á munum fyrir veiðimenn.
Stonfo Bobbin Elite 2 - Keflishalda
Guideline Multi Grip Telescopic Handfang
CND Gravity 11,6' #7/8
Veniard Mallard Duck Wing Quills Blue/White Tip
Loop Opti Gyre - Black
Reiða Öndin - Sarpur 
