Guideline Power Strike PRO Dry & Dropper er sérhannaður taumur fyrir veiðar með stærri flugur og vinsælar dry & dropper uppsetningar. Hann er með einstaka taper hönnun þar sem þvermálið eykst fram eftir taumnum og minnkar síðan aftur í enda, svipað og framþung (WF) flugulína. Þetta auðveldar veiðimanni að velta við flugunum og skapar meiri krafti í framsetningunni.
Taumurinn er tilbúinn til notkunar beint úr pakkanum með um 100 cm taumlengd (tippet). Styttri taumlengd tryggir hreina og stöðuga framsetningu og gerir stjórnun einfaldari, sérstaklega í minni ám og þröngum aðstæðum þar sem ekki er þörf á löngum köstum.
Ef þörf er á má auðveldlega aðlaga tauminn með því að stytta endann og bæta við taumi í æskilegri lengd, til dæmis með taumhring. Þetta gerir hann sveigjanlegan fyrir mismunandi veiðiaðstæður og þarfir.
Taumurinn er framleiddur úr hágæða japönsku nælonefni og með vatnsfráhrindandi húðun sem minnkar vatnsupptöku, eykur endingu og heldur efninu mjúku og meðfærilegu.
- Lengd: um 335 cm
- Tippet: um 100 cm (hægt að aðlaga)
- Eiginleikar: Framþung taper fyrir betri stjórn
- Húðun: Vatnsfráhrindandi fyrir betri endingu
- Notkun: Fyrir stærri flugur og dry & dropper uppsetningar
- Pakkning: 2 stk í pakka
Stærðir:
- 3X – 0,45 mm / 0,20 mm – 3,7 kg
- 4X – 0,42 mm / 0,18 mm – 2,9 kg
- 5X – 0,40 mm / 0,15 mm – 2,2 kg
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg XL
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8 










