Fitz Roy Nano Puff frá Patagonia er virkilega léttur og klæðilegur dömujakki. Hann er bæði vind- og vatnsheldur sem tryggir góða vörn í fjölbreyttri útiveru. Skel jakkans er úr 100% endurunnu pólýester og er fóðrið úr hinu fislétta og þjappanlega PrimaLoft Gold Eco. Einangrunin gerir það að verkum að jakkinn veitir einstaka hlýju og heldur varma jafnvel þó hann blotni. Fóðraðir vasar eru á hvorri hlið auk innri brjóstvasa, sem pakka má jakkanum í á ferðalögum.
Á honum er rennilás fyrir miðju sem er fóðraður til aukinna þæginda. Nano Puff jakkinn nýtist í gönguferðir, veiðina sem og aðra útiveru. Jakkinn er ljósgrænn að lit með merki Fitz Roy fisksins á vinstra brjósti. Hann er er framleiddur í Fair Trade vottaðri verksmiðju, sem þýðir að fólkið sem framleiddi hann fékk mannsæmandi (e. premium) laun fyrir.
Fishpond Smábrúsafesting
Echo Lift Einhendupakki 8' #4
Guideline The Camper Dark Grey Derhúfa
Lazzeri Hnýtingagálgi
Loon Blue Ribbon - Þurrfluguduft
Woody Silungaháfur
Leech X2 - Performance - Copper Silver
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4
Loon Fast Cast Tool - Línuhreinsunartæki
Costa Lido Veiðigleraugu 580G
C&F Magapumpa 











