Frábær Nano Puff jakki frá Patagonia sem er hlýr, vindheldur og vatnsvarinn. Skel hans er úr 100% endurunnu pólýester og er fóðrið úr fisléttu og samanþjappanlegu PrimaLoft Gold Eco. Einangrunin gerir það að verkum að jakkinn veitir mikla hlýju og heldur varma jafnvel þó hann blotni. Fóðraðir vasar eru á sitthvorri hlið auk innri brjóstvasa, sem pakka má jakkanum í á ferðalögum.
Nano Puff jakkinn nýtist vel við í hverskonar útivist eða til daglegra nota. Á honum er rennilás fyrir miðju sem er fóðraður til aukinna þæginda. Jakkinn er plómurauður að lit með merki Fitz Roy fisksins á vinstra brjósti. Hann er framleiddur í Fair Trade vottaðri verksmiðju, sem þýðir að fólkið sem framleiddi hann fékk mannsæmandi (e. premium) laun fyrir.
Selá í Vopnafirði
Loon Stream Soap - Vistvæn sápa
Woody Silungaháfur
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4
Leitin af stórlaxinum
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Reiða Öndin - Armband
Loon Razor 5“ Hnýtingaskæri
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Coghlans Flugnanet
Echo Lift Einhendupakki 9' #8
Taumaklippur 










