One80 höfuðljósið er fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Hönnunin gerir það að verkum að ljósboginn kastast 180° og gefur þannig notandanum fulla jarðarsýn. Ljósið er tilvalið í veiðiferðir, útilegur, útivist og alla vinnu þar sem birtuskilyrði eru óákjósanleg. Þá fylgir pakkanum trek-belti sem nota má um mittið eða brjóstkassa og er tilvalið í gönguferðir eða útihlaup.
One80 höfuðljósið er 360 lúmens, með endurhlaðanlegri 1800mAh rafhlöðu. Á því eru tvær birtustillingar og endist rafhlaðan í 3 klst á hærri stillingunni, en í 7 klst á þeirri lægri. Pakkanum fylgja tvær rafhlöður en hleðslutími þeirra er um 2 klst. Þyngd höfuðljóssins er 98 gr. og er það 100% vatnshelt. Bandið, án rafhlöðu og led-borða, má þvo í þvottavél.
Tacky Original Flugubox
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Loon UV Knot Sense - Hnútalím
Fishpond Thunderhead Eco Orange - Bakpoki
Tacky Original Flugubox 2X
Guideline Badge Trucker Cap Heat Derhúfa
Úr búri náttúrunnar
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Veniard Grey Goose Herl
Echo Lift Einhendupakki 9' #8
One80 Rafhlaða 












