Vönduð einhenda í lax- og sjóbirtingsveiði. Stöngin býður upp á frábæra línustjórnun og áreynslulaus köst. Hún hentar sérlega vel í íslenskar laxveiðiár, enda sameinar hún bæði afl og fínleika.
REN eru vandaðar fluguveiðistangir úr smiðju Nám. Þær eru gerðar úr einstakri grafítblöndu með ótrúlegum togstyrk. Þetta gerir það mögulegt að framleiða stangirnar með mjög léttum, fíngerðum topp sem sameinar nákvæmni og gríðarlega næmni. Óframsækin miðlungs djúp hleðsla í miðhluta stanganna veitir góða tilfinningu í köstunum. Niðurstaðan er mikill línuhraði án þess að fórna fínleikanum. Þegar á fyrstu metrum línunnar er stöngin hlaðin, sem gerir veiði á stuttu færi enn ánægjulegri.
Þunnur stangardúkurinn (e. blank) úr nútíma koltrefjum sýnir sig í hefðbundinni dökkbrúnni áferð stanganna. Þær eru með ofurléttum en sterkum lykkjum framleiddar úr títan. Handfangið er úr Delgado-korki í hæsta gæðaflokki. Hjólasætið er úr áli og rafhúðað með svartri áferð samkvæmt hefðbundinni skandinavískri hönnun.
Guideline Black Gnat Black Ullarúfa
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Loop 7X 10' #5
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Loop 7X 10' #7
Guideline Elevation 9' #7
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Loon Hydrostop - Vatnsvari
Loon Fly Spritz 2 - Þurrfluguúði
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
Loop Z1 11,6' #5 







