Mepps Aglia Long Rainbo spónninn er til í silfruðu gerðinni í fimm stærðum. Stærð 1 er 4,5 grömm, stærð 2 er 7 grömm, stærð 3 er 11,5 grömm, stærð 4 er 17 grömm og stærð 5 er 29 grömm.
Snúningur á spæninum er hægur og reglulegur, jafnvel í miklum straumi. Þessi spónn er tilvalinn í straumharðar ár, þar sem dýpi er mikið, og til veiða andstreymis. Einnig er spónninn heppilegur í vatnaveiði þegar egna þarf fyrir fisk sem liggur niður við botn og er ekki í leit að æti. Rainbo-spónninn hefur oft gefið vel í Hlíðarvatni í Selvogi og er mörgum uppáhald.
Vörunúmer: ME0458, ME0460, ME0461, ME1073 og ME1650.
Loop 7X 9' #8
Loop Opti Rapid - Black
Loon Water Based Thinner - Þynnir
CND Gravity 11,6' #7/8
McLean Salmon Weigh Net XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Fishpond Confluence Net Release 2.0 Háfafesting
Fishpond Thunderhead Eco Orange - Bakpoki 