Mjög vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZT 6-hluta tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi tvíhendupakki hentar sérstaklega vel í meðalstórar laxveiðiár. Stöngin er með djúpa en öfluga hleðslu, einstaklega nett og skemmtileg í fiski. Hún vinnur vel með flotlínu og löngum frammjókkandi taumum, og nýtur sín við krefjandi aðstæður þar sem nákvæm framsetning skiptir máli.
Loop ZT tvíhendurnar byggja á sömu grunngildum og Loop Z1, en eru í sex pörtum í stað fjögurra. „T“ stendur fyrir „travel“, enda eru þessar stangir hugsaðar með ferðalög í huga – hvort sem um er að ræða innanlandsferðir eða veiði í erlendum vatnasvæðum. Þær eru fáanlegar í fjölbreyttum stærðum sem henta mismunandi aðstæðum, með meðalhraðri sveigju (medium fast action), djúpri hleðslu og miklu afli. Léttleiki, næmni og frábær stjórn gera þær að áreiðanlegu verkfæri fyrir veiðimanninn.
Z-stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en Cross S1 forverar þeirra, m.a. vegna nano resin efnis og koltrefjabyggingar með 40–45 tonna spennuþoli. Þær veita aukna næmni, meiri kastvegalengd og öruggari svörun í kasti. Handföng eru úr fyrsta flokks korki, hjólasæti fislétt og lykkjurnar keramikfóðraðar úr títaníum – byggt fyrir langlífi og árangur.
Loop Evotec G5 fylgir með stönginni – fimmta kynslóð þessa trausta og vel þekkta hjóls. Það er búið Power Matrix bremsukerfinu sem tryggir jafna, vatnshelda og viðhaldsfría bremsu, jafnvel við átök við stóra fiska. Hjólið er smíðað úr renndu áli með ryðfríum íhlutum og endurbættum hnöppum sem veita betra grip og meiri stjórn.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – samfelld, hágæða tvíhendulína hönnuð sérstaklega fyrir íslenskar ár á borð við Hofsá, Selá og Miðfjarðará. Hún er aðeins yfir venjulegum þyngdarkvarða og hleður stöngina áreynslulaust. Línan leggst mjúklega á vatnsflötinn og hentar einstaklega vel þar sem nákvæmni og fín framsetning eru lykilatriði, t.d. í logni, mikilli birtu eða lágu vatni. Hofsá nýtist jafnt í stuttum sem lengri köstum, og vinnur vel með smáflugum, túpum og löngum taumum. Rennilínan er í appelsínugulum lit fyrir góða yfirsýn, en skothausinn í látlausum grænum tóni sem truflar síður fisk.
Loop ZT tvíhendupakkinn er frábær kostur fyrir þau sem ferðast með veiðigræjurnar – hvort sem er innanlands eða yfir landamæri – og gera ríkar kröfur um áreiðanleika, næmni og gæði í hverju einasta kasti.
Stonfo Fly Patch - Flugupaddi
Tacky Pescador XL - Dynamic Foam - Smoke Grey Flugubox
Guideline Rivolt 14' #9/10
Costa Panga Gold Veiðigleraugu 580G
Guideline Elevation Tvíhendupakki 13‘ #8/9
Guideline GL Mesh Trucker V. Khaki Derhúfa
Guideline Rivolt 9' #5
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - R. Green
Vision Magnetic Releaser - Háfasegull
Tacky Pescador Small - Clear- Burnt Orange Flugubox
Guideline NT11 Fast Full Flex 12' #7/8 - 6 pc
Fishpond River Bank Backpack Duskwood - Bakpoki
Guideline Aura Bronze 7/8
Fishpond Dorsal Fin Quilted Trucker Hat Campfire Derhúfa
Guideline Aura Titan 8/10
Loop Trak 10' #7
Opinel Trekking N°8 Burgundy Vasahnífur
Opinel Trekking N°8 Dark Brown Vasahnífur
Guideline Aura Bronze 8/10
Guideline Rivolt 9' #7
Costa Mainsail XL Veiðigleraugu 580G
Guideline Aura Titan Euro
Guideline GL Logo Cap G. Black Derhúfa
Loon Dust - Þurrfluguduft
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Loop Opti Strike - Storm Blue
Tacky Fly Dock - MagPad - Burnt Orange Flugupaddi
Guideline Aura Titan 3/4
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
Loop Trak 9' #7
Echo Base 2/3
Loop Z1 Tvíhendupakki 14' #9 





















