Verulega flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi tvíhendupakki er samsettur til notkunar í létta lax- og sjóbirtingsveiði. Stöngin er hönnuð fyrir meðalstórar ár og nýtur sín best með flotlínu og fremur léttum flugum, s.s. flottúpum, smáflugum og straumflugum. Hún er skemmtileg í fiski og býr að mikilli nákvæmni og góðri línustjórnun.
Loop Z1 tvíhendurnar eru fáanlegar í fjölbreyttum lengdum og línuþyngdum sem henta ólíkum aðstæðum. Þær eru fisléttar, nákvæmar og bjóða upp á áreynslulaus köst og yfirburða stjórn. Líkt og aðrar stangir í Z1-línunni eru þær meðalhraðar (medium fast action) með djúpri hleðslu og miklu afli. Hver stöng er sérsniðin að tilteknu veiðisniði frekar en að fylgja einni heildarformúlu fyrir allar gerðir.
Z stangirnar eru léttari og sterkari en Cross S1 forverar þeirra, þökk sé nano resin tækni og 40–45 tonna nano graphene koltrefjum. Þær bjóða upp á meiri kastvegalengd, betri næmni og aukið afl. Handföngin eru úr fyrsta flokks korki, með fisléttum hjólasætum og keramikfóðruðum lykkjum úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 fluguveiðihjól – fimmta kynslóð þessa vinsæla hjóls, sem hefur sannað sig í krefjandi aðstæðum. Það er búið vatnsheldu Power Matrix diskabremsukerfi sem tryggir örugga og jafna bremsu við átök. Hjólið er lokað og úr renndu áli með ryðfríum íhlutum. Málmgrár liturinn og endurbættir hnappar veita bæði fallegt útlit og aukið notendagildi.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – vönduð, samfelld tvíhendulína sem sérframleidd er fyrir íslenskar aðstæður. Línan er ögn þyngri en hefðbundinn kvarði segir til um og hleður stöngina með lágmarks fyrirhöfn. Hún leggst mjúklega á vatnsflötinn og skilar sér vel í logni, mikilli birtu eða við lága vatnsstöðu. Hofsá nýtist einstaklega vel í stuttum köstum en virkar einnig vel þegar kasta þarf lengra, hvort sem notaðar eru smáflugur eða túpur.
Loop Z1 tvíhendupakkinn er sérvalinn fyrir íslenskar aðstæður – traustur kostur fyrir veiðimenn sem gera ríkar kröfur til eiginleika, endingu og kastgetu.
Gudeline Curved Forceps Losunartöng
Taumaklippur
Fishpond Hailstorm Soft Cooler Duskwood - Kælitaska
Vise Keflishalda
Loop ZT Tvíhendupakki 13' #7
Zap-a-gap Drip On Lím
Zap-A-Gap Lím með bursta
Loop 7X 9,6' #6
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Fishpond Blizzard Kælitaska
Acryl-þynnir
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Xink sökkefni á flugur
Guideline Embrace Tvíhendupakki 14' #9/10 






















