Loop Z1 Einhendupakki 9′ #5

> Hágæða silungsveiðipakki
> Hentar í púpu- og straumfluguveiði
> Pakkanum fylgir Evotec G5 fluguhjól og Þverá flotlína
> Stöngin vegur aðeins 88 gr.

158.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

Þessi pakki er heppilegur í fjölbreyttan veiðiskap, hvort heldur í litlum ám eða í vatnaveiði. Stöngin fer vel með smáum flugum eins og púpum og þurrflugum, en ræður jafnframt við nettari straumflugur. Hún býr að miklu afli og er virkilega nákvæm, sem kemur sér vel í viðkvæmum aðstæðum. Flugustöngin er meðalhröð (e. medium fast action) og hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.

Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.

Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.

Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.

Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína frá Guideline. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína með fremur stuttum skothaus (8,4–9,3 m eftir línuþyngd), sem hleður stöngina auðveldlega og hentar sérlega vel fyrir nútímalegar grafítstangir með hröðum toppi. Línan spannar breitt svið: hún er létt og fíngerð þegar þörf krefur, en býður jafnframt upp á nægilegt afl við erfiðari aðstæður.

Þverá flýtur hátt, hefur mjög sleipa kápu og leggst mjúklega á vatnið – jafnvel í vindi eða þröngu rými. Hún er auðveld í stýringu og lagfæringum á straumvatni og hentar jafnt fyrir veltiköst sem yfirhandarköst. Tvílituð hönnunin auðveldar tímasetningu og hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt. Skothausinn er gráleitur til að trufla síður fisk, en rennilínan appelsínugul og sýnileg við allar birtuaðstæður.

Loop Z1 stangarpakkinn er sannarlega vandaður og hentar öllum þeim sem kjósa gæði, fjölhæfni og áreiðanleika í fluguveiði við íslenskar aðstæður.