Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Guideline Presentation+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi pakki er kjörinn fyrir þá sem vilja fremur nettar græjur til að veiða í meðalstórum silungsveiðiám og stöðuvötnum. Stöngin er ákjósanleg í púpu- og þurrfluguveiði. Hún er einstaklega nákvæm og fer sérlega vel með granna tauma og smáar flugur. Þetta er einhenda sem veitir mikla tilfinningu fyrir bráðinni og er þess vegna virkilega næm. Flugustöngin er meðalhröð (e. medium fast action) og býr að fullkominni línustjórnun. Stöngin hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.
Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Guideline Presentation+ flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Presentation+ er hönnuð fyrir silungsveiði þar sem nákvæmni og mjúk framsetning vegur meira en löng köst. Línan nýtur sín best í minni ám og vötnum, sérstaklega þar sem pláss fyrir bakköst er af skornum skammti. Hún hentar afar vel til að kasta með stuttan hluta skothaussins fyrir framan stangartoppinn.
Stór hluti þyngdar skothaussins liggur aftarlega og gerir línuna sérlega þægilega í veltiköstum. Stuttur bakendi og þjappaður miðkafli gefa línunni hraða, á meðan framhlutinn tryggir fullkomna framsetningu – jafnvel með löngum taumum. Lægri línuþyngdir eru frábærar í þurrflugur, en #5 og #6 eru nógu öflugar til að bera þyngri púpur og straumflugur.
Loop Z1 stangarpakkinn er sannarlega vandaður og hentar öllum þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Sumo Stangafestingar með Segli
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Dropper Festingar
Losunartöng
Taumaklippur
Guideline Forceps - Curved 6" - Losunartöng
Guideline LPX Nymph 10,2' #4
Fishpond Jagged Basin Fatataska
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Fishpond Nomad Canyon Silungaháfur
Patagonia Stand Up Trout Trucker Black Derhúfa
Echo Lift Einhendupakki 9' #7
Fishpond Thunderhead Eco Shale - Vatnsheld Mittistaska
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
GL Losunartöng
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Patagonia Guidewater Mittistaska - B. Green
Guideline Neck Gaiter Höfuðhlíf - Dark Seaweed
Echo Lift 9' #8
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Loon Leader Straightener - Taumastrekkjari
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Guideline The Camper Dark Grey Derhúfa
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Loop Fly Trucker Cap Burnt Russet Derhúfa
Loop Connecting Derhúfa
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3 


















