Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi fluguveiðipakki er tilvalinn í lax og sjóbirting og hentar sérlega vel í litlar og meðalstórar ár. Stöngin er virkilega öflug og nákvæm, kjörin í hverskonar stórfiskaleik. Hún ræður auðveldlega við stærri flugur og langa tauma, en nýtist ekki síður í smáflugur og gárutúpur. Stöngin er meðalhröð (e. medium fast action) og býr að fullkominni línustjórnun. Hún hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.
Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína með stuttum skothaus sem hleður stöngina auðveldlega og veitir mikið jafnvægi í köstunum. Hún flýtur hátt, rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar og leggst létt á vatnsflötinn.
Línan er með sleipri kápu sem auðveldar stjórn og lagfæringar á vatni. Tvílita hönnunin hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt og stýra línunni í fluginu. Skothausinn er gráleitur og rennilínan appelsínugul – samsetning sem veitir góða yfirsýn án þess að trufla fisk.
Loop Z1 stangarpakkinn er sannarlega vandaður og hentar öllum þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Krinkle Mirror Flash
Loop ZT Tvíhendupakki 13,2' #8
Veniard Grey Partridge Neck Natural
Veniard Peacock Sword Tails
Reiða Öndin - Sarpur
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Þræðari Elite 1,4 mm
Frödin Crooked Hnýtingaskæri
Elite Fluguhnýtingasett
Semperfli Superfine Dubbing Magnpakkning
Leech Cover - Intro - Yellow (Yfirgleraugu)
Guideline Logo Svört Derhúfa
Veniard Hare Mask
GL Losunartöng (Stór)
Jungle Cock Gervifjaðrir
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Guideline Elevation 9,9' #8
Losunartöng
Hare's Ear Dubbing Magnpakkning
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7
GL Losunartöng
Stonfo Trimmer - Snyrtir
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Rapala Laxaháfur M
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4
Norðurá - enn fegurst áa
Water Repellent - Vatnsvörn
Loon Bench UV ljós
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Tengi á þvingu - Joint Block
Griffin Hnýtingagálgi
Veniard Silver Pheasant Body Feathers
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7 























