Loop Trak einhendupakkinn í línuþyngd sjö er kraftmikill og fjölhæfur fluguveiðipakki fyrir veiðimenn sem vilja meiri burð, lengri köst og örugga stjórn við breytilegar aðstæður. Í pakkanum er Loop Trak 9′ #7 flugustöng, Loop Q fluguhjól og Þverá flotlína. Þetta er góð samsetning fyrir lax- og sjóbirtingsveiði, en nýtist einnig vel í veiði eftir staðbundnum urriða þar sem stærri flugur eða meiri yfirferð koma við sögu.
Loop Trak 9′ #7 er öflug einhenda sem ræður vel við fjölbreyttan veiðiskap í ám og vötnum. Hún fer létt með stærri flugur, lengri köst og aðstæður þar sem vindur blæs hraustlega á móti. Stöngin er meðalhröð og gefur góða blöndu af krafti, mýkt og nákvæmni.
Stöngin ræður vel við þyngri línur en nýtur sín sérstaklega vel með framþungri flotlínu. Hún heldur mjúkri og jafnri tilfinningu í kastinu og auðvelt er að ná fram fremur þröngum línubug. Það hjálpar veiðimanni að halda góðri stjórn, kasta yfir mismunandi svæði og leggja fluguna þar sem hún á að lenda.
Með stönginni fylgir Loop Q 6/8, létt og traust fluguhjól fyrir einhendur í línuþyngd #6–8. Hjólið er framleitt úr slitsterku áli, með stórri V-laga spólu sem tryggir hraða línuupptöku og minnkar línuminni. Innbyggð og innsigluð bremsa skilar mjúkri og stöðugri mótstöðu, og einfalt skrúfukerfi við spóluskipti tryggir að engir lausir hlutir tapist við árbakkann.
Þverá flotlínan passar vel með þessum pakka. Hún er hönnuð með íslensk veiðisvæði í huga og er með fremur stuttan skothaus sem hleður stöngina auðveldlega. Línunni er einfalt að kasta, jafnvel þegar pláss er takmarkað eða vindur gerir vart við sig. Hún flýtur hátt, rennur vel í gegnum lykkjurnar og tvílituð hönnunin hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt í kastinu.
Loop Trak Einhendupakki 9′ #7 er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja öflugan og skemmtilegan einhendupakka fyrir stærri fiska og fjölbreyttar íslenskar aðstæður. Hann hentar vel þegar veiða þarf með fjölbreyttum flugum, kasta lengra eða halda góðri stjórn þegar aðstæður verða krefjandi.
Loop Opti Dry Fly - Aurora Turquoise
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Loop Classic 10/13
Loon Classic Mitten - Skæratöng
Loop Opti Speedrunner - Arctic Blue
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Stonfo Fluguhnýtingasett
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Bakpoki
Guideline Experience Vatnsheldur 21L Bakpoki
Guideline LPX Tactical 9' #3
Fishpond Jagged Basin Fatataska
Fishpond Nomad Native Silungaháfur
Fishpond Ripple Hjólataska L
Fishpond Riverkeeper Stafrænn Vatnshitamælir
Guideline ULS 2.0 Switch-stöng 11' #8
Loop Trak 10' #5
Loop 7X 9' #8
Loop Opti Rapid - Mist Silver
Patagonia Stealth Switch Pack 3L Veiðitaska - R. Green
Taumaklippur
Loop ZX Einhendupakki 9' #7 



















