Loop Trak 9′ #8 er kraftmikil einhenda fyrir veiðimenn sem þurfa stöng sem getur sigrast á krefjandi aðstæðum. Hún hentar vel þegar kasta þarf stærri flugum, takast á við vind eða veiða fiska sem kalla á öflugri búnað.
Trak línan frá Loop er hönnuð fyrir gott jafnvægi og notendavæna virkni á hagstæðu verði. Stangirnar eru auðveldar í notkun, en búa samt að því afli og þeirri nákvæmni sem þarf þegar veitt er við breytilegar aðstæður.
Loop Trak 9′ #8 er góður kostur í hverskonar veiði með stórum flugum, en nýtist einnig vel í viðkvæmari aðstæður í sjóbirtingi og laxi. Hún hefur öflugan kraftmikinn topp, sem hjálpar til við að mynda línuhraða og snúa við stærri flugum.
Stöngin er meðalhröð og gefur góða blöndu af krafti, stjórn og nákvæmni. Hún nýtur sín sérstaklega vel þegar aðstæður eru krefjandi og veiðimaðurinn þarf að geta treyst á að stöngin vinni vel í gegnum kastið. Þannig verður auðveldara að ná góðri yfirferð, halda stjórn á línunni og leggja fluguna fram hvert sem er.
Stöngin er úr koltrefjum og er búin vönduðu AAA korkhandfangi, góðu hjólasæti með koltrefjainnleggi og ryðfríum lykkjum sem veita lágmarks mótstöðu. Loop Trak 9′ #8 er frábær kostur fyrir þá sem vilja öfluga og áreiðanlega einhendu fyrir stærri flugur, stærri fiska og erfiðari aðstæður.
Guideline Embrace Einhendupakki 10,6' #3
Guideline Rivolt 9' #7
Tacky Pescador Medium - Clear- Burnt Orange Flugubox
Leech Anti Fog - Móðuvörn
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
One80 Hjálmaljós
Úr búri náttúrunnar
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Fishpond High And Dry - Derhúfa fyrir börn
Loop Evotec G5 6/8
Tacky Pescador Leaflet- Large- Dynamic Foam Millispjald
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - B. Brown
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - R. Green
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Þræðari Elite 1,4 mm
Fishpond Swivel Áhaldagormur 











