Stalo er vindheldur jakki, hlýr og með sérstaklega góða öndunareiginleika. Hann er tilvalinn í mikla hreyfingu. Tvöfalt lag af ofnu pólýester og pólýetylen veita ótrúlega teygju. Ermarnar, sem eru fóðraðar með Sympatex filmu og útbúnar með gúmmí stormlokum, eru 100% vatnsheldar og halda úlnliðunum þurrum í góðri veiði þar sem hverjum fiskinum á fætur öðrum er sleppt.
Stalo-jakkinn er mjög fjölhæfur. Hann andar og er nægilega léttur í langa gönguferð en samt hlýr og vindheldur þegar kalt er í veðri. Ytra byrði úr nælon er slitsterkt. Vatnsheldur YKK rennilás heldur inni hita. Teygjubönd á hettu og ermum láta jakkann falla vel að. Tveir brjóstvasar með rennilás og hliðarvasar til þess að verma hendur bjóða upp á nægt geymslurými fyrir flugubox og aðra hluti. Stalo-jakkinn er góður ytri fatnaður vor, sumar og haust. Jakkinn er einnig gott miðlag þegar veður versna. Sympatex inni í ermum og stormlokur eru frábærar fyrir leiðsögumenn sem þurfa að dýfa hendinni oftsinnis á dag í kalt vatn til þess að sleppa fiski.
Loop ZX Einhendupakki 9,3' #6
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Loop Q Einhendupakki 9‘ #5
Guideline Elevation Tvíhendupakki 12‘ #7/8
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Loop Z1 Switch-pakki 11,6' #5
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Guideline LPX Chrome Einhendupakki 9,9' #6 








