Stalo eru léttar buxur frá Loop, til nota dags daglega eða í gönguferðir. Buxurnar eru framleiddar í Evrópu úr 83% næloni og 17% pólýefni, þær hafa mikla teygju og því þægilegar þegar farið er yfir langan veg. Buxurnar eru þeim eiginleikum gæddar að þorna ákaflega fljótt og gera veiðimönnum því kleift að vaða ár og læki þess fullvissir að buxurnar þorni á skömmum tíma.
Buxurnar hæfa veiði, fjallgöngu eða annarskonar útiveru. Þær eru með tveimur djúpum vösum og renndum vasa á hægri hlið. Á ökklum eru teygjur til að skálmar haldist yfir skóm, en buxunum fylgir einnig teygjanlegt belti.
Loop Trak Einhendupakki 10′ #7
Guideline Rivolt 13' #8/9
Guideline Embrace Einhendupakki 10,6' #3
Opinel Trekking N°7 Green Vasahnífur
Loop Z1 7,9' #3
Fishpond Ridgeline Tech Pack - Bakpoki
Guideline LPX Tactical 9' #4
Loop Trak 13' #7
Costa Grand Catalina Veiðigleraugu 580G
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa 







