Rosto 2.0 er flott hettupeysa frá Loop til daglegra nota eða sem miðlag innanundir vatnsheldan jakka. Hún er framleidd úr endurvinnanlegu pólýesterefni og elastan. Peysan er meðhöndluð með vatnsfráhrindandi efni, hún er afar teygjanleg og andar vel. Á henni er hár kragi og góð hetta úr örflísefni til að halda vindinum frá andlitinu.
Rosto 2.0 er góð flík til að nota sem millilag á köldum dögum, en andar þó það vel að hana má einnig nota á heitari sumardögum. Allir saumar eru styrktir sérstaklega til að tryggja aukna endingu. Peysan er afar létt og fyrirferðarlítil og má auðveldlega koma fyrir, t.d. í bakpokanum.
SALAR Daisy Black TWO
Guideline Fario Click 2/3
Fishpond Blizzard Kælitaska
SALAR Duke Matte Black ONE
Loon Small Caddy Smábrúsafesting
Patagonia Guidewater Blue - Mittistaska
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
SALAR Daisy Burnt Bronze THREE
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa
Fishpond Tacky Pescador Flugubox XL
Loop 7X 10' #7
Loop 7X 9' #8 




