Hágæða PrimaLoft jakki frá Loop sem er hluti af nýrri kvenfatalínu fyrirtækisins. Leipik er frábær flík sem nota má innundir vöðlujakkann, einan og sér eða í hverskonar útivist. Jakkinn er einstaklega léttur en með háa varmaleiðni, hann er tekinn saman í mitti og hannaður til að falla vel að notandanum.
Loop hefur framleidd Leipik–jakka fyrir karlmenn um nokkurt skeið en hafa nú sett fram nýja línu fyrir veiðikonur. Kvenjakkinn heldur betur varma en allir aðrir jakkar Loop miðað við þyngd. 80 gramma Primaloft® einangrunin hefur léttleika og varma dúns, en varmaleiðnin helst 100% þrátt fyrir að jakkinn blotni. Endingargóð nælonfilman, sem er bæði vatnsheld og vindheld, er einangrandi gegn vindi, regni og snjó.
Leipik–jakkinn er ögn léttari en Onka-jakkinn. Hann er gott val sem miðlag í kuldafatnaði eða sem yfirhöfn á svölum vor- og sumardögum. Hann er ótrúlega léttur og honum má hnoða saman í eigin vasa þannig að afar lítið fer fyrir honum. Hann er þægileg viðbót í allar ævintýraferðir og getur oft komið sér vel.
Costa Peli Gold Veiðigleraugu 580G
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
Loon UV ljós og lím
Loop Evotec G5 9/13
Guideline Elevation 9' #5
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Semperfli Ice Dubbing Magnpakkning
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Stonfo Flytec Base Hnýtingaþvinga
Frödin Tungsten Hnýtingaskæri
Stonfo línukarfa
Loop Connecting Derhúfa 







