Fyrsta vatnshelda mittistaskan frá Loop sem rúmar allt sem þarf við veiðar. Taskan er með rúllulokun og því þarf ekki að hafa áhyggjur af innihaldi hennar þegar vaðið er djúpt eða þegar rignir. Mittistaskan er framleidd úr TPU-húðuðu nælonefni, en með þeirri tækni næst jafnvægi á milli þyngdar, vatnsheldni og endingu.
Í mittistöskunni er eitt stórt aðalhólf sem hægt er að skipta upp og skipuleggja eftir þörfum. Ytri byrði töskunnar býður upp á ýmsa möguleika, s.s. til að festa tæki og tól sem gott er að hafa við höndina. Þá er unnt að festa vatnsbrúsa við botninn.
Taskan er með gott belti sem andar og varnar þannig svitamyndun. Það heldur vel við mjóbakið og því finnur notandinn lítið fyrir að bera hana, jafnvel á löngum dögum. Á belti töskunnar eru tvö minni hólf sem hugsuð eru til að geyma smáhluti. Á fljótlegan og einfaldan hátt má stilla beltið eftir þörfum hvers og eins.
Patagonia Guidewater Caramel – Mittistaska
Rub Silungaháfur
Frödin Crooked Hnýtingaskæri
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Loon Infinity UV ljós
Loop Opti Rapid - Black
Guideline Elevation 13' #8/9
Loon Rouge Skæratöng
Fishpond Thunderhead Eco Shale - Vatnsheld Mittistaska
Ruslakarfa á þvingu
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Fishpond Switchback Pro Mittistaska 








