Virkilega flottur bakpoki frá Loop sem er algjörlega vatnsheldur og framleiddur úr sterku 600*1200 Denier-nælonefni. Hann er hannaður með þarfir veiðimannsins í huga en nýtist að sjálfsögðu í ýmsa útivist. Framan á bakpokanum er laser-skorin rist sem býður upp á ótal festipunkta, s.s. til að hengja taumaspóluhaldara, taumaklippur, tangir, vatnshitamæli eða önnur veiðitól. Á hliðum bakpokans eru stórir teygjanlegir vasar sem rúma m.a. vatnsbrúsa eða stangarhólka. Innan í pokanum er renndur vasi undir það allra mikilvægasta. Þá eru á honum tvö burðarhandföng, auk D-lykkju fyrir veiðiháfinn. Bakpokinn er með svokallaðri roll-top lokun og rúmar 25 lítra.
Axlarólar bakpokans eru þægilegar og henta vel þegar gengið er yfir langan veg. Ólarnar eru ofnar svo hægt sé að festa á þær ýmiskonar tæki og tól. Baksvæðið er hannað þannig að raki eigi greiða leið frá notandanum. Mittisbeltið má stilla hratt og auðveldlega með hliðarlásum, svo ekki þarf að kvíða þótt flíkum notandans fækki eða fjölgi. Beltið veitir góðan stuðning þegar bornar eru þungar birgðir, en sé þess ekki þörf er einfalt að smella því af bakpokanum.
Loop Opti Rapid - Black
Loop 7X 9' #5
Guideline Landing Net Leash - Háfasnúra
Loon Rouge Skæratöng
Guideline Multi Grip Cork Handfang
Guideline Forceps- Straight 6" - Losunartöng
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Bakpoki
Shark Tooth Skurðarteygja L
McLean Foldable Weight-Net (M115) - Silungaháfur með Innbyggðri Vigt
Tacky Pescador Small - Clear- Burnt Orange Flugubox
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Guideline Forceps - Spring Creek 5" - Losunartöng
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Xink sökkefni á flugur 







