Vatnsheldur bakpoki frá Loop sem framleiddur úr slitsterku 600*1200 Denier-nælonefni. Bakpokinn er sérstaklega hannaður með þarfir veiðimannsins í huga en nýtist einnig í ýmsa aðra útivist. Framan á honum er laser-skorin rist sem býður upp á ótal festipunkta, s.s. til að hengja taumaklippur, losunartöng, vatnshitamæli eða önnur veiðitól. Á hliðum bakpokans eru stórir vasar sem rúma vatnsbrúsa eða stangarhólka. Innan í pokanum er renndur vasi undir það allra mikilvægasta, s.s. bíllyklana. Þá eru á honum tvö burðarhandföng, auk D-lykkju fyrir veiðiháfinn. Bakpokinn er með svokallaðri roll-top lokun og rúmar 25 lítra.
Axlarólarnar eru ofnar svo hægt sé að festa á þær ýmiskonar tæki og tól. Baksvæðið og axlarböndin eru hönnuð þannig að raki eigi greiða leið frá notandanum. Mittisbeltið má stilla hratt og auðveldlega með hliðarlásum, svo ekki þarf að kvíða þótt flíkum notandans fækki eða fjölgi. Beltið veitir góðan stuðning þegar pokinn er vel hlaðinn, en sé þess ekki þörf er einfalt að smella beltinu af bakpokanum.
Loop Evotec G5 3/5
Loop Connecting Derhúfa
Fishpond Green River Veiðitaska
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Waterfall Drykkjamál
Loop Opti Strike - Black
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Plaströr fyrir microtúpur
Loop Opti Speedrunner - Black
Loop Opti Runner - Black
Stonfo Razor - Hársnyrtitól
Loop Opti Runner - Twilight Violet
Patagonia Stealth 25L M Bakpoki - B. Brown 








