Leech Anti Fog – Móðuvörn

Móðuvörn sem kemur í veg fyrir móðumyndun inn á gleraugum við raka- eða hitabreytingar. Létt 30 ml flaska sem er fyrirferðarlítil í vasa.

1.295kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Leech Anti Fog er árangursrík og einföld móðuvörn fyrir veiðigleraugu sem tryggir að linsurnar haldist tærar og móðulausar – jafnvel þegar veðrið breytist snögglega eða þú ferð úr kulda í hlýju. Þetta er ómissandi búnaður fyrir þá sem vilja fullkomið skyggni án þess að þurfa að strjúka og þurrka linsurnar trekk í trekk.

Spreyið kemur í 30 ml sprautuflösku, sem er létt og þægileg í meðförum og smellpassar í vasa eða veiðitösku. Móðuvörnin virkar á flestar gerðir linsa – þar á meðal TAC, PC og aðrar veiðilinsur – og dregur úr móðu í klukkustundir eftir notkun.

Helstu eiginleikar:

  • Móðuvörn fyrir veiðigleraugu og linsur
  • Hindrar móðu myndun við hitabreytingar og raka
  • Hentar fyrir Polaroid-, TAC- og PC-linsur
  • Létt 30 ml flaska – auðveld í vasa eða tösku