Laerdal er nýr vöðlujakki frá Guideline sem er hannaður með kvensniði og veitir fullkomna vörn gegn veðri og vindum. Hann hámarkar hreyfigetu notandans og er úthugsaður hvað skipulag varðar. Jakkinn er framleiddur úr þriggja-laga nælonefni sem er með góðri öndun og veitir góða vörn í íslenskri veðráttu.
Hetta jakkans er hönnuð þannig að unnt sé að hylja háls og andlit í erfiðum aðstæðum. Ermar eru með stillanlegri lokun sem varna vatni leið upp hendurnar. Framan á jakkanum eru tveir rúmgóðir brjóstvasar undir flugubox, auk minni vasa fyrir taumaefni. D-lykkja er á baki fyrir veiðiháf og áhaldaslá að framan fyrir veiðitólin, s.s. taumaklippur og töng. Að innanverðu er vasi sem hugsaður er undir vettlinga, húfu eða annarskonar fylgihluti. Á hliðum jakkans eru fóðraðir vasar til að verma hendurnar. Rennilásinn að framan er að fullu vatnsheldur með YKK Aquaguard™, en vasar eru með vatnsvörðum YKK Vislon™ rennilásum.
Guideline Embrace Einhendupakki 9' #7
SALAR S4 15' #10/11
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Echo Lift Einhendupakki 8' #4
GL Losunartöng
Loop ZT 12,2' #6
Veniard Peacock Eye Top Natural
Jungle Cock Gervifjaðrir
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #3
Guideline Multi Grip Veiðiháfur L
Loon Áhaldaspóla
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Leech ATW2 - Intro - Copper
Coghlans Flugnanet
Af flugum, löxum og mönnum
Stonfo Þræðari 






