Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Nova fluguveiðihjól, undirlínu og Presentation+ flotlínu eða aðra sambærilega línu.
Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Stöngin í pakkanum er nett meðalhröð einhenda sem hentar sérlega vel í silungsveiði, smærri ár og læki. Hún er létt í hendi, með næman topp og gefur veiðimanni góða línustjórnun á styttra og meðal löngu færi.
Elevation flugustangirnar eru hannaðar fyrir breiðan hóp veiðimanna og byggja á vistvænum áherslum Guideline – þar sem lágmörkuð efnisnotkun og minni umhverfisáhrif ganga hönd í hönd með háum gæðum og frammistöðu. Þær hlaðast jafnt niður í skaft með stöðugum krafti og fyrirgefa vel mistök á kastferlinum.
Stönginni fylgir Nova fluguveiðihjól frá Guideline sem er framleitt úr endurunnum hráefnum, án einnota plastefna. Hjólið er létt, sterkt og byggt fyrir mikla notkun. Sérsniðið bremsukerfi tryggir stöðugan þrýsting í átökum og fullkomna stjórn, og útlitshönnunin byggir á nýrri tækni þar sem styrkur og sjálfbærni fara saman.
Á hjólinu er undirlína og Presentation+ flotlína – fjölhæf lína sem hentar vel þar sem pláss fyrir bakkast er takmarkað. Hún hleðst hratt og ber fluguna vel með mikilli nákvæmni. Línan er stöðug í lofti, mjúk í meðförum og rennur vel – jafnvel í köldum aðstæðum.
Elevation stangarpakkinn með Nova hjóli og Presentation+ línu er frábær kostur fyrir veiðimenn sem sækjast eftir léttri, nákvæmri stöng í vönduðu og vistvænu umhverfi.
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Stonfo Áhaldasegull
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker New Navy Derhúfa
Loop Logo Dad Cap Dark Navy Derhúfa
Fishpond Firehole Bakpoki
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4 



















