Sterkir og þægilegir taumahringir frá Guideline sem fást í tveimur útfærslum. Þetta eru hágæða japanskir hringir sem eru með svartri nikkel áferð til að lágmarka glampa svo fiskur styggist síður. Önnur gerðin er 2 mm að þvermáli og hentar vel í allskyns silungsveiði. Styrkur þeirra miðast við 12 kg. Hin gerðin hentar betur í sjóbirting og lax en styrkur þeirra hringja er 24 kg. Þeir eru 4 mm að þvermáli, en innanmálið er 2,9 mm. 10 taumahringir eru í hverjum pakka og koma þeir á sigurnagla sem festa má á áhaldaspólu.
Guideline Tippet Rings (Taumahringir)
Sterkir og þægilegir taumahringir frá Guideline sem fást í tveimur útfærslum. Þetta eru hágæða japanskir hringir sem eru með svartri nikkel áferð til að lágmarka glampa svo fiskur styggist síður. Önnur gerðin er 2 mm að þvermáli og hentar vel í allskyns silungsveiði, hin er 4 mm og hentar í lax- og sjóbirtingsveiði.
1.595kr.
Loop 7X 12,6' #9
Nám VOR 9' #7
Guideline LPX Tactical 9' #4
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #5
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Lifesystems Flugnanet
Guideline Scandi Black/Blue 7/9
Fulling Mill Pocket Flugubox - Blue
Dropper Festingar 





