Frog Hair taumefnið er úr blöndu plastefna. Með sérstakri framleiðsluaðferð Gamma er tengingu sameindanna breytt þannig að taumefnið verður óvenju sterkt miðað við sverleika. Frog Hair er glært taumaefni, 30 metrar eru á hverri spólu, en 25 metrar þegar styrkleikinn er kominn yfir 20 lbs.
Margt af því taumaefni sem Veiðiflugur selur brotnar ekki niður í náttúrunni. Veiðiflugur hvetja því veiðimenn til að hugsa vel um umhverfið og henda notuðu taumaefni ekki út í náttúruna.
Stonfo Áhaldasegull
McLean Sea Trout XXL - Veiðiháfur
Stonfo Áhaldasnúra 






