Þessi vel hannaði bakpoki frá Fishpond verndar innihaldið gegn veðri og vindum. Hann er með svokallaðri Roll-Top lokun í stað hefðbundins renniláss, sem gerir það mögulegt að aðlaga stærð pokans eftir þörfum. Efnið er 100% vatnshelt og tryggir að farangurinn haldist þurr. Að framanverðu er renndur vasi fyrir smáhluti og festipunktar á hliðum pokans.
Axlarböndin eru mjög þægileg og hægt er að festa ýmiskonar veiðibúnað á þau. Þar eru einnig festingar fyrir GPS sendi eða talstöð. Mótuð bakliðin og þétt belti veita notandanum góðan stuðning. Stærð bakpokans, þegar toppurinn er rúllaður upp þrisvar sinnum, er 60 x 30 x 20 cm. Hann vegur 1,63 kg og rúmar allt að 38 lítra.
Guideline LPX Chrome 9,9' #6
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Patagonia Take a Stand T. Blue Derhúfa
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Áhaldaspóla
Fishpond Dakota 31" stanga- og hjólataska 









