Thunderhead ECO mittistaskan eru hluti af nýrri endurhannaðri vörulínu frá Fishpond. Taskan er algjörlega vatnsheld og búin vatnsheldum rennilás með ljúfloku, sem heldur allri bleytu frá innihaldinu. Hún er framleidd úr einkar sterku efni sem endurunnið er úr plasti. Taskan gerðar fyrir verulega mikla notkun og þolir því mikið hnjask. Allur frágangur er eins og best verður á kosið.
Mittistaskan er hönnuð með þarfir veiðimannsins í huga og rúmar allt það nauðsynlegasta sem þarf við árbakkann, s.s. flugubox, myndavél, áhöld og nestið. Taskan er búin góðu bakstuðningsbelti og því leikur einn að veiða daglangt með töskuna á bakinu. Að framan er renndur vasi auk ýmissa festinga fyrir veiðitól, D-lykkjur og fleira. Að innan er rennilásavasi sem má fjarlægja, auk hólfs undir smádótið. Axlaról fylgir pokanum og má nota eftir þörfum.
Stærð töskunnar er 34 x 23 x 13 cm, hún vegur 0,8 kg og rúmar 10 lítra. Fáanleg í þremur litum.
Sjálfbærni
Ný vara, gamalt efni
Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.
Guideline Multi Grip Veiðiháfur L
Loon Classic Mitten - Skæratöng
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Fifty Places to Fly Fish
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Reiða Öndin - Sarpur
Guideline Stream Thermometer - Vatnshitamælir
360 Dubbing tól
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Loon Rouge Skæratöng
Loon Razor 4“ Hnýtingaskæri
Zap-A-Gap Lím með bursta
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Stonfo Fly Patch - Flugupaddi
Coghlans Flugnanet
Patagonia Guidewater S. Green - Vatnsheld Mittistaska 







