Switchback Pro mittistaskan tilheyrir sannarlega nýrri kynslóð veiðitaska, enda er unnt að sérsníða hana eftir þörfum notandans hverju sinni. Taskan er hönnuð tvíhliða svo hana má nota yfir vinstri eða hægri öxlina. Í töskunni er rúmgott aðalhólf með skilrúmum og tveimur teygjanlegum vösum. Að framanverðu er hólf sem fellur niður þegar það er opnað. Þar fyrir innan eru tveir vasar auk annars sem er renndur. Ofan á er flugubretti frá Tacky sem hugsað er undir notuðu flugurnar.
Á töskunni er vöðlubelti með innbyggðri festingu fyrir silungaháfinn. Þá fylgir góð axlaról með flugupadda og ótal tengimöguleikum fyrir veiðitól- og tæki. Taskan er hönnuð þannig að veiðimaður geti kastað með hana á sér. Hægt er að færa töskuna fram og aftur á þar til gerðum sleða, svo unnt sé að nálgast innihaldið auðveldlega þegar á þarf að halda. Stærð hennar er 29 x 22 x 17 cm. Frábær hönnum frá Fishpond sem nýtist í alla silungsveiði.
Guideline Embrace Einhendupakki 9' #7
Loop Z1 9,6' #7
Guideline Experience Vatnsheld 5L Mittistaska
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Guideline Black Gnat Black Ullarúfa
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Loop Opti Runner - Black
Morsetto Flytec Hnýtingaþvinga
Nám REN 11,6' #6
Loop Opti Megaloop - Black
Patagonia Guidewater S. Green - Vatnsheld Mittistaska 







