Fishpond San Juan er virkilega vel hönnuð taska og kjörin fyrir styttri veiðiferðir. Hana má nota sem brjóstpoka eða sem auka geymslu á Fishpond vaðbelti. Þá er einnig hægt að geyma töskuna á bakinu þegar egnt er fyrir fisk. Aðalhólf pokans er með rennilás og nýtist t.d. undir fluguboxin. Að innanverðu er renndur vasi. Framan á pokanum er svo vasi sem fellur fram, í honum er frauðpaddi sem nota má undir flugur eða smádót. Stærð töskunnar er 13 x 10 x 22 cm, en á henni eru ýmsar lykkjur og hringir svo festa megi helstu tæki og tól.
Fishpond FlyLite Veiðivesti (Dömu)
Dr. Slick Bodkin Nál
Ambush Yellow 3X Veiðigleraugu með styrk
Fishpond Cabin Creek Toiletry Kit Duskwood - Snyrtitaska 






