Dakota 45″ stanga– og hjólataskan frá Fishpond er stór, rúmgóð og einstaklega vel hönnuð. Í töskuna komast um 7-9 stangir, allt að 14 fetum og 8-10 hjól. Taskan er með breytilegum innri hólfum, á henni eru þrír renndir vasar að utan og þrír að innan.
Frábær lausn fyrir þá sem vilja allar græjurnar á sama stað. Ein vinsælasta taskan í Veiðiflugum.
Stærð: 114 x 23 x 13 cm.
Sjálfbærni
Ný vara, gamalt efni
Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.
Costa Sullivan Gold Veiðigleraugu 580G
Costa Diego Veiðigleraugu 580G
Loop Logo Meshback G. White Derhúfa
GL Clipper Taumaklippur
Losunartöng
Fishpond Jagged Basin Fatataska 









