Einarsson Charcoal SOLID 8Plus Fluguhjól
Einarsson í SOLID útgáfu er sérhannað fyrir veiðimenn sem sækja í straumþungar ár og fiska sem krefjast trausts búnaðar. Hjól með heilu baki og lokaðri grind veitir bæði mikla vörn, aukinn stífleika og tímalaust útlit. Það hentar fullkomlega með tvíhendum í línuþyngd #8–9. Grindin heldur fínni línum innan ramma og gerir hjólið stöðugt, jafnvel við mikið álag og átökum við kraftmikla fiska.
Bremsukerfið er innsiglað og byggt á kolefnis- og málmdiskum sem skila silkimjúkri og jafnvægisstilltri mótstöðu. Nýr og stærri bremsuhnappur veitir betra grip og tryggir auðvelda fínstillingu, hvort sem það er kalt, blautt eða stressandi. Ytra byrðið er rennt úr 6061 T651 flugvélaáli og er með dökkgrárri Type III húðun, sem skilar slitstyrk og fallegu, möttu yfirborði – tilvalið með dökkum, nútímalegum veiðistöngum.
Helstu eiginleikar:
• Hjólið fyrir laxveiði með tvíhenum
• Lokað SOLID bak og lokuð grind – aukin vernd og styrkur
• Viðhaldsfrí kolefnisbremsa – stillanleg, mjúk og örugg
• Nýr stærri bremsuhnappur – auðveld notkun og nákvæm stjórn
• Matt Charcoal anodisering – Type III húðun fyrir mikla endingu
• Tvítryggð og fljótleg spóluskipting
Tæknilýsing:
• Stærð: #8–9 (DH), #9–10 (SH)
• Þvermál: 105 mm
• Spólubreidd: 32 mm
• Þyngd: 220 g
• Rýmd: WF9 + 150 m af 30 lb Dacron
• Efni: 6061 T651 ál með Type III anodiseringu
Vision Meri Silungaháfur
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - G. Green
Loop Fly Trucker Cap Khaki Derhúfa
Loop Trak Tvíhendupakki 14′ #9
Loop Fly Trucker Cap River Green Derhúfa
Nám VOR 10' #7
Loop 7X 11,6' #7
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8
Guideline Elevation 12' #7/8
Loop Trak 10' #7
Loop X10 Veiðigleraugu Copper
Nám REN 12,6' #7
Loop Classic 10/13 









