Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Echo Lift 9‘ flugustöng í línuþyngd 7, Echo Base fluguveiðihjól, undirlínu og Aquanova XHi flotlínu.
Echo Lift stangirnar eru byggðar á Echo Base línunni sem naut mikilla vinsælda um árabil, en nýja hönnunin tekur veiðimenn skrefi lengra. Þær eru umtalsvert léttari en fyrri gerðir og auðveldari í hleðslu, sem skilar sér í mýkri og áhrifaríkari köstum. Handfangið hefur verið endurhannað til að bæta stjórn og gera veiðina skemmtilegri, og einfalt er að fá stöngina til að vinna með sér — óháð kaststíl. Þrátt fyrir bætta hönnun og aukin gæði er verðið enn afar hagstætt. Echo Lift stangirnar bjóða upp á einstakt verðgildi fyrir byrjendur sem og vana veiðimenn.
Stangirnar eru meðalhraðar, nákvæmar og kraftmiklar, í fjórum pörtum. Þær eru með krómuðum lykkjum, slitsterku korkhaldfangi og fylgja þeim bæði stangarpoki og hólkur. Framleiðandi veitir einnig lífstíðarábyrgð.
Echo Base hjólið er einfalt í notkun en traust, með öllum helstu eiginleikum sem gera það að góðu grunnveiðihjóli. Það kemur uppsett með undirlínu og Aquanova XHi flotlínu, sem hentar sérstaklega vel í vatnaveiði með þurrflugum, púpum og léttum straumflugum. Línan er um 25% léttari en vatn og flýtur því hátt, með teflonhúðaðri kápu sem dregur úr viðnámi og eykur línuhraða. Hún er einnig með lágu minni og kuðlast ekki, jafnvel í miklu kulda. Línan er 32 metra löng og með tilbúnum lykkjum á báðum endum.
Þetta er frábær byrjunarpakki á mjög sanngjörnu verði — hentar jafnt í vötn sem ár.
Fulling Mill Pocket Flugubox - Blue
Guideline Forceps - Curved 6" - Losunartöng
Loop Opti Runner - Black
Reiða Öndin - Sarpur
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Guideline LPX Tactical 9' #2
Guideline ULS 2.0 Switch-stöng 11' #8
Áhaldaspóla
Loop Classic 7/9
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Loon Snake River Mud - Sökkefni
Tacky Pescador XL - Dynamic Foam - Smoke Grey Flugubox
Scott Centric 9‘ #4
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Loop Z1 11,6' #5
Echo Lift 9' #8
GL Losunartöng
Loop Opti Speedrunner - Black 














