Aransas veiðigleraugun frá Costa eru innblásin af lífinu við vatnið, litum og mynstrum sem fanga anda þess. Gleraugun koma með 580 punkta glerlinsum sem veita einstaka vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Umgjörðin er með klassísku skjaldbökumynstri og linsurnar eru með gylltum speglum.
Costa veiðigleraugu
Costa Del Mar er einn stærsti sólgleraugnaframleiðandi í heiminum í dag – og ekki að ástæðulausu.
Öll veiðigleraugu sem fyrirtækir framleiðir veita fullkomna vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Costa er með einkaleyfi á framleiðslu sinni sem nefnist Costa 580®
99,9%
Polaroid virkni
580® punktar
Einstök skerpa
C-Wall ®
Aukið rispu- og blettaþol
580G/P
Hágæða gler- og plaslinsur
Fullkomin vörn
Polaroid-linsur (e. polarized lenses) eru sérlega mikilvægar fyrir alla þá sem verja tíma sínum utandyra – ekki hvað síst fyrir veiðimenn þar sem sólarljós endurkastast af yfirborði vatns.
Costa linsur eru með 99,9% polaroid virkni
+ Besta tækni sem fáanleg er í veiðigleraugum
+ Veitir augunum fullkomna vörn fyrir sólargeislum
+ Costa framleiðir aðeins polaroid gleraugu
Hvernig virka Costa 580®?
Linsan síar út sterka gula geisla sólarinnar. Með því móti greina augun betri liti, birtuskil verða eðlilegri og sjónin skarpari.Til einföldunar má segja að Costa gleraugun haldi slæmu birtunni frá augunum og góðri birtu að þeim.
Hvernig gagnast tæknin?
Costa gleraugun sía út glampa af völdum sólarljóss á vatni svo augun greina mun betur það sem er undir yfirborðinu. Þannig getur veiðimaður séð botn árinnar langt um skýrar en ella. Með betri tækni nær Costa þeim árangri að framleiða skörpustu veiðigleraugu í heimi.
En Costa eru þó ekki bara veiðigleraugu því þau nýtast einnig sem sólgleraugu dagsdaglega. Costa gleraugun eru fáanleg með plastlinsum og glerlinsum í mörgum útfærslum.
Fishpond Piopod Ruslatunna
Stonfo áhald fyrir hálfhnútinn
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Loon Ergo Arrow Point 3,5“ Hnýtingaskæri
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Fishpond Confluence Net Release 2.0 Háfafesting
Losunartöng
Af flugum, löxum og mönnum
Reiða Öndin - Sarpur
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Loon Caddy Smábrúsafesting
Loon Top Ride - Þurrfluguduft
Loop Z1 Tvíhendupakki 13' #6
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Stonfo Magnetic Material Clip - Efnisklemma
Stonfo Áhaldasegull
Guideline Coastal Solartech Derhúfa
Costa Jose Pro Veiðigleraugu 580G 













