CND Gravity 9′ #8

> Alvöru græja í alvöru fiska
> Ræður við allar veðuraðstæður
> Nýtist með öllum línugerðum
> Stöng með einn auka gír

124.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Þessi frábæra einhenda, sem tilheyrir Gravity seríunni, hefur dýpri virkni og sterkari topp en sambærilegar stangir í línuþyngd #8. Þrátt fyrir það næst sami línuhraði, sem er sérstaklega mikilvægt í erfiðum veðuraðstæðum eða þegar veitt er á stærri flugur. Stöngin veitir einstaklega góða línutilfinningu allt kastið og öflugur neðri hluti stangarinnar gefst aldrei upp.

Þetta er stöng sem nýtist best í að kljást við stóra fiska. Hana má nota í lax- og sjóbirtingsveiði en stöngin nýtist einnig í sjávarveiði á framandi slóðum. Hana má nota með ólíkum flugulínum, s.s. hefðbundnum flot- og sökklínum eða með hverskonar skothausum. Mælt er með línuþyngd á bilinu 19-21 grömm.