Einstaklega létt switch-stöng sem býr að ótrúlegu afli. Þetta er hin fullkomna stöng fyrir íslenskar aðstæður, hvorki of stór né of lítil. Það er hrein unun að kasta stönginni, enda framkvæmir hún það sem til er ætlast án nokkurrar áreynslu. Hún er framleidd fyrir litlar og meðalstórar ár, en er þó það öflug að hana má nota í stærri ársvæði.
Við mælum með að nota:
Sandá #7
Hofsá #7
Laxá #7
Jöklu sem vegur 350 grain + 10-12‘ línuenda.
Hönnun CND
Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.
Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch.
CND tilfinning
Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.
Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.
CND fágun
CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.
Loop 7X 9' #4
Loop 7X 9,6' #6
Loop Z1 12,4' #7
Echo Lift 8' #4
Loop 7X 9' #7
Loop 7X 10' #5
Loop ZX 9,3' #6
Fishpond Dakota 31" stanga- og hjólataska
Loop ZT 12,2' #6
Guideline ULS 2.0 Switch-stöng 11' #8
Scott Centric 9‘ #4
Guideline Aeon - Black/Gold #9/11
Fishpond Thunderhead Sub. Pouch Þurrpoki - Eco S. Camo
Guideline Elevation 9,9' #7
Loop 7X 13,2' #8
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Loop ZT 13' #7
Guideline Experience Vatnsheld 5L Mittistaska
McLean Salmon Weigh Net 3XL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
CND Nordic 11,9' #7/8
Loop 7X 11,6' #5
Loon Razor 5“ Hnýtingaskæri
Loop 7X 9,6' #7
Fishpond Tacky Pescador MagPad Flugubox
CND Gravity 11,6' #7/8
Loop ZX 9' #7
Loop Z1 10' #5
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
Loop Z1 9,6' #7
Guideline Embrace Tvíhendupakki 13' #8/9
Tacky Daypack Flugubox
Loon Krókabox / Kónabox
Guideline Embrace Einhendupakki 9' #5
Við straumana - veiðibók
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Loop Z1 11,6' #7 









