One 80 Höfuðljós

Skoða vörur

One80 höfuðljós eru fyrstu sinnar tegundar í heiminum. Með einstakri hönnun nær ljósboginn að kastast 180° sem gefur notandanum fulla jarðarsýn þegar á þarf að halda. Ljósið er framleitt með fjölþætta notkun í huga en notkunarmöguleikarnir eru nær endalausir. Höfuðljósið hentar sérlega vel í alla útiveru þegar birtuskilyrði eru lítil, s.s. við veiðar, á göngu, í útihlaup, klettaklifur, hellaskoðun og reiðmennsku.

Led-borðinn er 360 lúmens, með endurhlaðanlegri 1800mAh rafhlöðu. Á því eru tvær birtustillingar og endist rafhlaðan í 3 klst á hærri stillingunni, en í 7 klst á þeirri lægri. Hleðslutími rafhlöðunnar er um 2 klst. Þyngd höfuðljóssins er 98 gr. og er það 100% vatnshelt. Bandið, án rafhlöðu og led-borða, má þvo í þvottavél.

Nokkrar útgáfur eru fáanlegar, en hver þeirra þjónar ákveðnum tilgangi. 

Höfuðljósið er er fullkomlega vatnshelt og má því nota í öllum veðuraðstæðum, bæði utandyra- og innan. Ljósið er einkar létt og reynir því lítið á höfuð og háls notandans. Rafhlaða ljóssins er hlaðin með USB-hleðslusnúru í bílnum eða heimavið. Tóm rafhlaða er u.þ.b. tvær klukkustundir að ná fullri hleðslu. Höfuðljósið má nota á hærri og lægri ljósstillingu en einnig má láta ljósið blikka.

One80 höfuðljósin henta við ýmiss tilefni, til dæmis í:  Gönguferðir – Útihlaup – Fjallgöngur -Klettaklifur – Hellaskoðanir – Stangveiði – Skotveiði – Hestamennsku – Útilegur – Bifreiðaviðgerðir – Málningarvinnu – Sumarbústaðinn.

Smelltu hér til að skoða allar vörur frá One80