
Korkers vöðluskór
Korkers hefur í yfir 50 ár hannað og þróað skóbúnað fyrir útivistarfólk. Fyrirtækið framleiðir nokkrar gerðir af vöðluskóm sem allir eiga það sameiginlegt að vera einstaklega vandaðir, þægilegir og öruggir. Allir skór frá Korkers koma með einkaleyfisvörðum búnaði sem nefnist OmniTrax og byggir á þeirri hugmyndafræði að nota sama búnað í mismunandi aðstæðum. Með OmniTrax má skipta út sóla/botni vöðluskónna eftir því hvar er veitt og hvernig undirlagið er.
Traustar undirstöður
Flestir vöðluskór frá Korkers eru með endingargóðu M2 Boa® vírakerfi í stað hefðbundinna reima. Sá búnaður er til aukinna þæginda fyrir veiðimenn enda einkar þægilegt að fara í og úr skónum. Korkers skóm fylgir tvennskonar botnar en vilji menn annarskonar botna eru þeir fáanlegir í verslun Veiðiflugna. Hægt er að velja um filtbotn, neglt filt, vibram eða neglda vibram.
Loop ZT Tvíhendupakki 12,2' #6
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
Fishpond Switchback Wading System 2.0 - Mittistaska
CND Gravity 10' #7
Loop Z1 7,9' #3
Taumaklippur
Loop Opti Creek - Black
Loop Opti Gyre - Black
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #6
Loop Opti Megaloop - Black
Bodkin - Nál með krók
Loop 7X 10' #7