is en

Bara Vatn Og Fiskur

4.250,- ISK. Setja í körfu

Upplýsingar

Hinn reyndi laxveiði- og veiðileiðsögumaður Pálmi Einarsson, sem rekur sitt eigið hönnunarfyrirtæki designhouseone, er að gefa út sína fyrstu bók fyrir þessi jól. Bókin heitir Bara vatn og fiskur og telur 64 síður, fallega innbundin og saumuð og sómir sér því vel á stofuborði, í veiðihúsum og frammi í fyrirtækjum.

 

Í bókinni eru einstakar ljósmyndir af sex íslenskum laxveiðiám ásamt áhugaverðum og nytsamlegum ráðum með skýringarmyndum. Myndirnar tók Pálmi í veiðiferðum sínum sl. tvö sumur og byggjast ráðin á áralangri reynslu hans af laxveiði. Allar skýringarmyndirnar teiknaði hann sjálfur og sá einnig um uppsetningu og umbrot.

 

Bókin kemur út þann 25. nóvember nk. og mun fást í bókabúð veiðimannsins Veiðiflugum. Nánari upplýsingar um sölustaði má finna á heimasíðunni www.designhouseone.com. Þar er einnig hægt að skoða nokkrar opnur úr bókinni sem verður gefin út á ensku, þýsku og frönsku í vor.

 

Við óskum Pálma til hamingju með þessa glæsilegu bók sem er hin fullkomna gjöf stangveiðimannsins.