PT Evolve Skothaus (Flot)

PT Evolve er miðlungslangur skothaus sem hentar í stærri laxveiðiár. Línan býður upp á mjúklega framsetningu flugunnar og nákvæm áreynslulaus köst. Hentar bæði byrjendum sem lengra komnum.

13.900kr.
4.170kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

PT Evolve er nútíma skothaus, hannaður til að hlaða stöngina með auðveldum hætti. Þyngd skothaussins liggur nokkuð aftarlega en mjókkar fram yfir langt svæði (e. long front taper). Línan leggst mjúklega á vatnsflötinn en getur þrátt fyrir það kastað þungum túpum og nær að rétta úr löngum taumum.

Línan er afar stöðug í loftinu og hentar því ekki hvað síst fyrir þá sem eru óreyndari í tvíhenduköstum. PT Evolve nýtur sín best í stærri laxveiðiár, enda er lend haussins töluverð, eða frá 10,7 metrum upp í 11,7 metra. Skothausinn hentar vel í veltiköst en honum má einnig yfirhandarkasta.