Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlupakki II

Einstaklega vandaður vöðlupakki sem samanstendur af Swiftcurrent Expedition vöðlum frá Patagonia og River Ops Boa eða Forra vöðluskóm. Vöðlurnar eru gerðar úr þriggja- og fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No®, en það hefur Patagonia þróað undanfarinn áratug. Efnið er nú slitsterkara og þjálla en áður.

147.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlur

River Ops BOA Vöðluskór

Patagonia Forra Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Swiftcurrent Expedition eru glæsilegar vöðlur frá Patagonia sem framleiddar eru úr þriggja- og fjögurra laga öndunarefni sem nefnist H2No®. Patagonia hefur prófað og þróað efnið undanfarinn áratug og er það nú slitsterkara og þjálla en áður. Breytingin tryggir aukin þægindi og lengri endingu.

Swiftcurrent Expedition eru styrktar í klofi og á skálmum svo veiðimenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti.

Framan á vöðlunum er stór renndur vasi fyrir miðju með vatnsvörðum rennilás. Á hvorri hlið eru renndir fóðraðir vasar til að verma hendur. Að innanverðu er tvöfaldur vatnsheldur poki sem velta má fram, hann er ætlaður undir síma og bíllykla. Axlarbönd eru stillt með einu handtaki og má færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur.

River Ops BOA eru tæknilegustu og endingarbestu vöðluskórnir frá Korkers, með hinu vinsæla BOA-vírakerfi. Þeir eru hannaðir til að standast gríðarmikla notkun og þola mikið hnjask. Skórnir eru framleiddir sérstaklega fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. River Ops BOA eru fullkomnir fyrir leiðsögumenn og aðra þá veiðimenn sem kjósa áreiðanleika og stöðuleika. Vöðluskórnir eru í sérflokki þegar kemur að þægindum og endingu, en til marks um það fylgir þeim tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi.

Einstök ending River Ops BOA skónna næst fram með nýrri tækni sem kallast Exo-Tec™. Skórnir eru ekki saumaðir á hefðbundinn hátt heldur eru þeir mótaðir í framleiðsluferlinu án þess að saumar komi nærri. Efnislög eru samsett með hinni nýju bræðslutækni sem kemur í veg fyrir að álagsfletir trosni upp. En þrátt fyrir að skórinn þoli mikið slit, s.s. vegna grjóts eða kletta, er hann ákaflega sveigjanlegur og hegðar sér eins og hver annar íþróttaskór.

Forra vöðluskórnir eru frá Patagonia. Þeir eru hannaðir í fjölbreytta veiði og framleiddir úr fljótþornandi efnum. Vöðluskórnir eru með Vibram® gúmmísóla sem veitir mikið grip í flestum aðstæðum. Þeir reimast hátt og veita traustan öklastuðning. Táin sérstaklega styrkt og eru reimarnar afar slitsterkar. Stilla má skóna eftir hentugleika, svo stuðningurinn sé eins og hentar hverju sinni.

Patagonia Swiftcurrent vöðlupakkinn er sannarlega vandaður og hentar þeim sérstaklega sem verja mörgum dögum á ári við veiðar.