Patagonia W’s Swiftcurrent Dömuvöðlupakki I

Flottur vöðlupakki sem samanstendur af Swiftcurrent kvenvöðlum frá Patagonia og Laerdal vöðluskóm frá Guideline. Vöðlurnar eru framleiddar úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No®, en það hefur Patagonia prófað og þróað undanfarinn áratug. Vöðlurnar búa að ýmsum þægindum og þær má nota á fjölbreyttan máta.

115.900kr.

Patagonia W's Swiftcurrent Dömuvöðlur

Laerdal Vibram Vöðluskór (Dömu)

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Patagonia Swiftcurrent vöðlupakkinn er virklega flottur og hentar konum í hverskonar veiðiskap. Hann inniheldur Swiftcurrent öndunarvöðlur og Laerdal vöðlsukó með vibram-sóla. Vöðlurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir veiðikonur. Þær eru gerðar eru úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No® sem er afar slitsterkt og þjált. Swiftcurrent eru búnar ýmsum þægindum en mittishæð þeirra má stilla eftir þörfum notandans með þar til gerðum EZ-lásum. Axlarböndum má breyta með einu handtaki og unnt að færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur. Þá má losa vöðlurnar að aftan með smellu, sem nýtist þegar farið er í þær og úr, en ekki síður þegar nota á vöðlurnar sem mittisvöðlur.

Á hvorri hlið vaðlanna eru fóðraðir vasar til að hvíla eða verma hendur. Framan á þeim er rúmgóður vasi með vatnsvörðum rennilás. Að innanverðu er vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Vöðlurnar eru styrktar í klofi og skálmum svo veiðikonur þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir gott teygjanlegt belti.

Laerdal vöðluskórnir eru hannaðir fyrir konur og eru hluti af öðrum flíkum Laerdal-seríunni frá Guideline. Skórnir eru léttir og sitja vel, en eru á sama tíma stöðugir og styðja vel við ökklana. Þeir eru með Vibram® Idrogrip klístraðan gúmmísóla sem gefur öruggt grip á blautu yfirborði, fullkomnir þegar vaðið er og í langar göngur meðfram ám og vötnum.