Guidewater er virkilega vandaður 29 lítra bakpoki frá Patagonia sem er 100% vatnsheldur. Hann er hannaður á þann veg að hann sé sem léttastur, án þess að það komi niður á gæðunum. Axlarólar eru vatnsfælnar, taka hvorki við né geyma vatn. Það sama á við um utanvert bakið. Á hliðum er innbyggt slíður fyrir veiðiháfinn. Að innanverðu er vatnsheldur vasi sem aðskilur smáhluti frá innihaldi aðalhólfsins. Þann vasa er hægt er að færa og koma fyrir að utanverðu þegar svo ber undir.
Þennan bakpoka má nota samhliða öðrum vörum frá Patagonia, s.s. Convertible vestinu eða Stealth Work Station vöðlupokanum. Þannig má auðvelda aðgengi að nauðsynlegum hlutum við veiðar og auka geymslupláss. Bakpokinn er framleiddur í Fair Trade vottaðri verksmiðju, sem þýðir að fólkið sem framleiddi hann fékk mannsæmandi (e. premium) laun fyrir.
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Guideline Experience Waterproof Zip 21 Bakpoki
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8
Stonfo Reel Line Clip Taumhald
Loop Dry 25L Yellow Bakpoki 











