Frábær 29 lítra bakpoki frá Patagonia sem er algjörlega vatnsheldur. Hann er hannaður þannig að hann sé sem léttastur, án þess að það komi niður á gæðunum. Bak og axlarólar eru vatnsfælnar, þ.e. þær hvorki taka við né geyma vatn. Á bakpokanum er slíður fyrir veiðiháfinn, sem nýtist bæði fyrir rétthenta sem örvhenta veiðimenn. Að innan er vatnsheldur vasi sem aðskilur smáhluti frá innihaldi aðalhólfsins. Þann vasa er hægt er að færa og koma fyrir að utanverðu þegar svo ber undir.
Bakpokann má nota með öðrum vörum frá Patagonia, s.s. Convertible vestinu eða Stealth Work Station vöðlupokanum. Þannig má auka geymslupláss og auðvelda aðgengi að nauðsynlegum hlutum við veiðarnar. Bakpokinn er framleiddur í Fair Trade vottaðri verksmiðju, sem þýðir að fólkið sem framleiddi hann fékk mannsæmandi (e. premium) laun fyrir.
Stonfo Bobbin Elite 2 - Keflishalda
Plaströr fyrir microtúpur
Veniard English Partridge Brown Back
Zap-A-Gap Lím með bursta
Vise Keflishalda
Costa Reefton Veiðigleraugu 580P
Loop 7X 11,6' #5
Acryl-þynnir
Leech ATW3 - Intro - Yellow
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
LPX Amber Veiðigleraugu
Fishpond Thunderhead Eco Shadowcast Camo – Bakpoki 






