Loop Trak Switch-pakkinn er fjölhæfur fluguveiðipakki fyrir veiðimenn sem vilja sameina léttleikann úr einhendu og kraftinn úr tvíhendu. Í pakkanum er Loop Trak 11′ #7 switch stöng, Loop Q 7/9 fluguhjól og Hofsá flotlína. Þetta er góð samsetning fyrir lax, sjóbirting og aðstæður þar sem aukin línustjórn, góð yfirferð og skilvirk köst skipta máli.
Loop Trak 11′ #7 brúar bilið milli einhendu og tvíhendu. Hún hentar vel þegar kasta þarf bæði yfirhandarköstum og Spey-köstum, eða þegar pláss er takmarkað við árbakkann. Lengdin gefur betri stjórn á línunni en hefðbundin einhenda, en stöngin er samt létt og meðfærileg yfir langan veiðidag.
Stöngin er meðalhröð, hleðst mjúklega og réttir vel úr sér í kastinu. Hún hefur nægan kraft til að snúa stærri flugum og halda stjórn við krefjandi aðstæður, en er jafnframt þægileg og aðgengileg í notkun.
Með stönginni fylgir Loop Q 7/9, sterkt og áreiðanlegt fluguhjól. Hjólið er framleitt úr slitsterku, steyptu áli og er með stórri V-laga spólu sem tryggir hraða línuupptöku og góða línustýringu. Innbyggð og innsigluð bremsa skilar mjúkri og jafnri mótstöðu þegar tekið er á móti fiski, og einfalt skrúfukerfi við spóluskipti tryggir að engir lausir hlutir tapist við árbakkann.
Hofsá flotlínan fullkomnar pakkann. Hún er samfelld lína, sérframleidd fyrir Veiðiflugur, og hentar bæði switch stöngum og hefðbundnum tvíhendum. Línan er ögn þyngri en hefðbundinn þyngdarkvarði segir til um, sem hjálpar til við að hlaða stöngina með lágmarks fyrirhöfn. Hún leggst mjúklega á vatnið, hentar vel með löngum frammjókkandi taumum og nýtist bæði í veltiköst og yfirhandarköst.
Loop Trak Switch-pakki 11′ #7 er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja léttan, kraftmikinn og fjölhæfan pakka fyrir íslenskar aðstæður. Hann hentar vel í lax- og sjóbirtingsveiði, sérstaklega þar sem þarf góða línustjórn og skilvirk köst.
Guideline NT11 Trout 9' #6
Veniard Ripple Flash
Guideline Easy Fold II Veiðiháfur
Guideline Nova Stardust 8/10
Guideline Aura Titan 5/6
Guideline Carbon Vaðstafur
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
Guideline NT11 Salmon 13,9' #9/10
Guideline NT11 Fast Full Flex 10' #7
Guideline NT11 Salmon 10' #7
Guideline Aura Titan 8/10
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Guideline Embrace Tvíhendupakki 13' #8/9
Ambush Yellow 3X Veiðigleraugu með styrk
Guideline Leader Wallet - Taumaveski
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Stonfo Borðfótur
Loop Classic 10/13
Guideline Forceps - Curved 6" - Losunartöng
Áhaldaslá á þvingur
Guideline NT11 Switch-stöng 11,6' #7/8 - 6 pcs
Guideline Elevation Nymph 10,6' #3
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Guideline Aeon - Black/Silver #7/9
Loon UV ljós og lím
Loop Z1 Switch-pakki 11,6' #7 


















