Loop Trak 11′ #7 er fjölhæf switch stöng fyrir veiðimenn sem vilja sameina léttleikann úr einhendu og kraftinn úr tvíhendu. Hún hentar vel þegar veitt er við breytilegar aðstæður, hvort sem kastað er yfirhandarköstum, veltiköstum eða Spey-köstum með léttri tvíhendutækni.
Trak línan frá Loop er hönnuð til að bjóða upp á góða frammistöðu á hagstæðu verði. Stangirnar eru auðveldar í notkun, en búa samt að því afli og þeirri nákvæmni sem þarf þegar aðstæður kalla á betri línustjórn, meiri kastlengd eða stærri flugur.
Loop Trak 11′ #7 hentar vel í lax- og sjóbirtingsveiði, en einnig fyrir veiðimenn sem vilja létta og meðfærilega stöng til að ná betri yfirferð í stærri ám. Lengdin gefur aukna stjórn á línunni og hjálpar til við að kasta skilvirkt þegar pláss er takmarkað eða þegar betra er að vinna fluguna með tvíhenduköstum.
Stöngin er meðalhröð, hleðst mjúklega og réttir hratt úr sér í kastinu. Það gerir hana þægilega í notkun, hvort sem kastað er yfirhandarköstum eða veltiköstum. Hún er létt og vel jafnvægisstillt, en hefur samt nægan kraft til að snúa við stærri flugum og halda góðri stjórn við allar aðstæður.
Stöngin er úr koltrefjum og er búin vönduðu AAA korkhandfangi, sterku hjólasæti með koltrefjainnleggi og vönduðum ryðfríum lykkjum sem veita lágmarks mótstöðu. Loop Trak 11′ #7 er góður kostur fyrir þá sem vilja aðgengilega og fjölhæfa switch-stöng fyrir lax, sjóbirting og fjölbreyttar íslenskar aðstæður.
Guideline Elevation 9' #6 










