Laxá Vöðlupakki II

Laxá vöðlupakki II samanstendur af Laxá 2.0 vöðlunum frá Guideline sem eru framleiddar úr 4-laga nælonefni og vöðluskóm frá Korkers eða Guideline. Unnt er að velja á milli Devils Canyon, Darkhorse og Alta NGx skónna. Þessi pakki hentar sérstaklega þeim sem ganga mikið á veiðislóð, enda eru allir skórnir frábærir til göngu og vöðlurnar léttar og meðfærilegar.

76.900kr.

Laxá 2.0 Vöðlur

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

Alta NGx Vibram Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Þetta er vandaður vöðlupakki sem inniheldur góðar vöðlur og vandaða vöðluskó. Laxá 2.0 vöðlurnar eru öndunarvöðlur sem eru framleiddar úr 4-laga nælonefni. Þær eru gerðar úr vistvænni efnum og meðhöndlaðar þannig að þær hrindi bæði frá sér vatni og óhreinindum. Sumar eru lokaðir með því sem nefnist Sidewinder, sem eykur styrk þeirra og um leið hreyfigetu notandans.

Tveir stórir renndir brjóstvasar eru á vöðlunum auk tveggja fóðraðra vasa fyrir hendur. Axlarólar eru stillanlegar sem og vöðlubeltið sem gert er úr teygjanlegu næloni. Sandhlífar eru álagsþolnar og með innfelldri teygju til að festa yfir vöðluskó. Sokkar eru úr sterku neophrene efni og eru aðlagaðir að vinstri og hægri fæti til aukinna þæginda. Með vöðlunum koma vandaðir skór frá Korkers eða Guideline, en hægt er að velja á milli Devils Canyon, Darkhorse og Alta NGx skónna.

Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir Korkers skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Alta NGx vöðluskórnir frá Guideline eru með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem býður upp á þægindi, stöðugleika og langa endingu. Miðsólinn ásamt stífu gerviefni sjá til þess að veita frábæran stuðning í grófu landslagi. Skórnir eru sérstaklega styrktir og þola því betur hnjask frá hvössum grjótum þegar vaðið er.