Laxá Vöðlupakki III

Laxá vöðlupakki III inniheldur vandaðar öndunarvöðlur frá Guideline sem framleiddar úr 4-laga nælonefni. Val er á milli River Ops vöðluskónna frá Korkers og HD Vibram frá Guideline.

81.900kr.

Laxá 2.0 Vöðlur

River Ops BOA Vöðluskór

HD Vibram Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Vandaður vöðlupakki sem inniheldur góðar vöðlur og vandaða vöðluskó. Laxá 2.0 vöðlurnar eru flottar öndunarvöðlur sem framleiddar eru úr 4-laga nælonefni. Þær eru gerðar úr vistvænni efnum og meðhöndlaðar þannig að þær hrindi bæði frá sér vatni og óhreinindum. Sumar eru lokaðir með því sem nefnist Sidewinder, sem eykur styrk þeirra og um leið hreyfigetu notandans. Hægt er að velja á milli River Ops vöðluskónna frá Korkers og HD Vibram frá Guideline í þessum pakka.

Tveir stórir renndir brjóstvasar eru á vöðlunum auk tveggja fóðraðra vasa fyrir hendur. Axlarólar eru stillanlegar sem og vöðlubeltið sem gert er úr teygjanlegu næloni. Sandhlífar eru álagsþolnar og með innfelldri teygju til að festa yfir vöðluskó. Sokkar eru úr sterku neophrene efni og eru aðlagaðir að vinstri og hægri fæti til aukinna þæginda.

River Ops BOA eru án nokkurs vafa tæknilegustu og endingarbestu vöðluskórnir frá Korkers, með hinu vinsæla BOA-vírakerfi. Þeir eru hannaðir til að standast gríðarmikla notkun og þola mikið hnjask. Skórnir eru framleiddir sérstaklega fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. River Ops BOA eru fullkomnir fyrir leiðsögumenn og aðra þá veiðimenn sem kjósa áreiðanleika og stöðuleika. Vöðluskórnir eru í sérflokki þegar kemur að þægindum og endingu, en til marks um það fylgir þeim tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi.

Guideline HD (Heavy Duty) vöðluskórnir eru hannaðir til notkunar við erfiðustu veiðiaðstæður. Vegna aukinnar hæðar, þykkari bólstrunar og mikils stífleika í efninu hafa skórnir aukinn stöðugleika sem hjálpar þegar vaðið er á grófum árbotni og í ójöfnu landslagi.

Sérlega flottur pakki fyrir alla veiðimenn.